Persónuverndartilkynning
Söfnun myndbands-, mynda- og hljóðgagna sem hluti af verkefninu „Samstarf um sjálfvirkan akstur“ á vegum Robert Bosch GmbH og CARIAD SE.
1. Hvaða upplýsingum söfnum við?
Þessi gögn geta – eftir því sem við á í hverju tilviki – einnig innihaldið eftirfarandi persónuupplýsingar:
- Andlit, önnur einkenni vegfarenda og annarra farþega sem eru í nágrenni ökutækjanna.
- Bílnúmer ökutækja, önnur einkenni og umhverfi ökutækja.
- Hljóðupplýsingar úr nágrenni ökutækjanna.
- Önnur gögn frá öðrum skynjarakerfum (svo sem ratsjá og LIDAR) auk GPS-staðsetningar og tímastimpils.
Þótt andlitum geti brugðið fyrir í þeim myndbands- og myndgögnum sem safnað er, beinist frekari vinnsla okkar að einkennum þeirra sem „hlutir“ innan umhverfisins (t.d. lögun, hreyfimynstur) fyrir tæknilega kerfisþróun, ekki til að bera kennsl á einstaklinga. Við notum gögnin hvorki til líffræðilegrar auðkenningar né í öðrum auðkenningartilgangi.
2. Hver er ábyrgðaraðilinn vinnslunnar, og við hvern get ég haft samband við til að fá frekari upplýsingar?
Sameiginlegir ábyrgðaraðilar:
Robert Bosch GmbH
Robert-Bosch-Platz 1
70839 Gerlingen- Schillerhöhe
Þýskaland
og
CARIAD SE
Major-Hirst-Straße 7
38442 Wolfsburg
Þýskaland
Ef þú vilt hafa samband við okkur, vinsamlegast notaðu eftirfarandi tengiliðaupplýsingar:
Netfang: privacy@automated-driving-alliance.com
Persónuverndarfulltrúi - Robert Bosch GmbH:
Upplýsinga- og persónuverndardeild Bosch Group(C/ISP) Pósthólf 300220 70442 Stuttgart Þýskalandi
Netfang: DPO@bosch.com
Persónuverndarfulltrúi - CARIAD SE:
Major-Hirst-Straße 7 38442 Wolfsburg Þýskalandi
Netfang: privacy@cariad.technology
3. Hvers vegna notum við persónuupplýsingar og á hvaða lagagrundvelli?
Einstaklingar, ökutæki, aðrir hlutir og hljóðupplýsingar verða greindir, flokkaðir og unnir sem „hlutir“ í samhengi við umferð- og umhverfisaðstæður, t.d. sem:
- Gangandi vegfarandi hægra megin á veginum
- Bíll á gatnamótum
- Sírenuhljóð fyrir aftan ökutækið
4. Verður persónuupplýsingum miðlað til þriðja aðila?
Upplýsingum er aðeins deilt með öðrum fyrirtækjum innan BOSCH eða CARIAD samstæðunnar, með samstarfsaðilum, þróunaraðilum, vinnsluaðilum eða öðrum þriðja aðila í þeim tilgangi sem lýst er hér að ofan.
Uppýsingum verður einungis miðlað þar sem slíkt er heimilt að lögum.
Flokkar viðtakenda, sem persónuupplýsingum kann að vera miðlað til í þeim tilgangi sem lýst er hér að ofan, eru einkum:
- Innri og ytri samstarfsaðilar auk þróunarsamstarfsaðilar ábyrgðaraðila, innan ramma rannsóknar- og þróunarferla.
- Birgjar innan ramma rannsóknar- og þróunarferla.
- Aðrir þjónustuaðilar (einkum upplýsingatækniþjónustuaðilar, og þjónustuaðilar fyrir gagnavinnslu/gagnagreiningu).
Þar sem þjónustuveitendur vinna úr persónuupplýsingum fyrir okkar hönd starfa þeir sem vinnsluaðilar samkvæmt okkar leiðbeiningum og eru samningsbundnir á grundvelli vinnslusamnings. Slíkir samningar krefjast þess að vinnsluaðilar innleiði viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að tryggja öryggi og trúnað persónuupplýsinga og vinni einungis úr gögnunum í samræmi við skráðar leiðbeiningar okkar.
5. Notum við persónuupplýsingar þínar til sjálfvirkrar ákvarðanatöku eða til að búa til persónusnið?
Nei.
6. Hversu lengi geymum við persónuupplýsingarnar?
Myndbands- og myndgögnin eru unnin og geymd eins lengi og nauðsynlegt er fyrir rannsóknar-, þróunar- og prófunarferlin. Ef, í hverju tilviki fyrir sig, er til staðar frekari lagagrundvöllur eða frekari lögmætir hagsmunir fyrir áframhaldandi varðveislu og vinnslu (t.d. fyrir rétta skráningu nefndra ferla, vegna lögbundinna varðveisluskyldna eða annarra lagakrafna), verða gögnin geymd í samsvarandi lengri tíma.
7. Hvaða réttindi hefur þú?
Þú nýtur eftirfarandi réttinda, sem þú getur nýtt þér gagnvart hverjum og einum hinna sameiginlegu ábyrgðaraðila:
- Réttur til aðgangs: Þú hefur rétt til að fá upplýsingar um vinnslu á upplýsingum þínum. Þú getur krafist aðgangs að persónuupplýsingum þínum sem við vinnum úr.
- Réttur til leiðréttingar og eyðingar: Þú getur óskað eftir því að við leiðréttum rangar upplýsingar. Að því marki sem lagaskilyrði eru uppfyllt, getur þú farið fram á að bætt verði úr ófullkomnum upplýsingum eða upplýsingum þínum eytt. Þessi ákvæði eiga ekki við um gögn sem eru háð lögbundnum varðveisluskyldum. Að því marki sem aðgangur að þessum upplýsingum er ekki nauðsynlegur, verður vinnsla þeirra takmörkuð (sjá hér að neðan).
- Takmörkun vinnslu: Að því marki sem lagaskilyrði eru uppfyllt, getur þú óskað eftir því að við takmörkum vinnslu upplýsinga þinna.
- Andmæli gegn vinnslu: Þú hefur rétt til að andmæla vinnslu upplýsinga þinna.
- Réttur til að leggja fram kvörtun til eftirlitsstofnunar: Þú hefur rétt til að leggja fram kvörtun til viðeigandi persónuverndareftirlitsstofnunar í þínu lögsagnarumdæmi eða dvalarstað, ef þú telur að vinnsla persónuupplýsinga þinna brjóti í bága við gildandi persónuverndarlög. Ef viðkomandi vinnsla fer fram á Íslandi eða þú ert staðsettur á Íslandi, getur þú lagt fram kvörtun til Persónuverndar.
8. Upplýsingar um sameiginlega ábyrgð
Hver er ástæðan fyrir sameiginlegri ábyrgð samstarfsaðilanna?
Robert Bosch GmbH og CARIAD SE vinna náið saman í virkni- og ökutækjaþróun sem hluti af verkefninu „Samstarf um sjálfvirkan akstur“. Þetta á einnig við um vinnslu persónuupplýsinga, að því marki sem þeim hefur verið safnað af samsvarandi þróunarökutækjum. Samstarfsaðilarnir hafa skilgreint vinnslufasa þessara gagna í einstökum ferlum á sameiginlegan hátt. Þeir eru því samábyrgir fyrir vernd persónuupplýsinga þinna innan þeirra ferla sem lýst er hér að neðan.
Á hvaða stigum vinnslunnar er um sameiginlega ábyrgð að ræða?
Sameiginleg ábyrgð samstarfsaðilanna tekur til söfnunar, varðveislu og frekari vinnslu á myndbands-, mynd- og hljóðgögnum. Samstarfsaðilarnir safna gögnum um ökutæki og miðla þeim til sameiginlegs upplýsingatæknikerfis þar sem gögnin eru varðveitt og báðir samstarfsaðilar geta nálgast þau eða unnið með þau í rannsóknarskyni, til (frekari) þróunar og til prófana.
Utan verkefnisins geta samstarfsaðilarnir unnið upplýsingar undir sérstakri ábyrgð, að því gefnu að lög heimila slíka vinnslu.
Hvað hafa aðilar samið um?
Sem liður í sameiginlegri ábyrgð sinni hafa samstarfsaðilarnir einnig komið sér saman um að með söfnun upplýsinga sé upplýsingaskylda á grundvelli sameiginlegrar ábyrgðar jafnframt uppfyllt.
Hvað þýðir þetta fyrir hinn skráða?
Hægt er að beita persónuverndarréttindum bæði gagnvart Robert Bosch GmbH og CARIAD SE með tengiliðaupplýsingunum sem gefnar eru upp í kafla 2. Samstarfsaðilarnir munu upplýsa hvorn annan án tafar um beiðnir frá hinum skráðu. Þeir munu veita hvor öðrum allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að svara slíkum beiðnum tímanlega.
9. Breytingar á persónuverndartilkynningu okkar
Við áskiljum okkur rétt til að breyta persónuverndartilkynningu okkar af og til í því skyni að endurspegla breytingar á því hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar. Vinsamlegast gangið úr skugga um að þið séuð að skoða nýjustu útgáfuna af persónuverndartilkynningu okkar.
Síðast endurskoðað þann: 28/04/2026